UM OKKUR

Markmið okkar er að virkja sköpunarkraft og ímyndunarafl hvers og eins. Við leggjum okkur fram við að efla trú einstaklingsins á eigin getu og þannig þróa með sér hæfni til þess að mæta þörfum framtíðarinnar. Við bjóðum upp á fjölbreytt og skapandi námskeið fyrir börn jafnt sem fullorðna sem auðga líf fólks. Námskeiðin snúa að tækni og vísindum, myndlist, tónlist, dansi, leiklist, sjálfsrækt og allir eru velkomnir

Hugmyndafræði Klifsins byggir á eflandi kennslufræði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar og kenningum um hæfniþróun. Klifið er hugsjónafélag sem er ekki rekið í hagnaðarskyni (non-profit association).

Skilmálar

FÓLKIÐ

Klifið er framsækið fræðslusetur og leggur mikið upp úr því að fá til sín sérfræðinga á sínu sviði til þess að leiðbeina á námskeiðum. Í Klifinu þróum við hugmyndir og gerum tilraunir í samstarfi við leiðbeinendur, fagfélög, menntastofnanir og Háskóla. Við setjum upp smiðjur og námskeið, erum óhrædd við að prófa nýtt námsefni og nýjar nálganir í kennslu.

[/vc_column][/vc_row]

Skilmálar