Öll leiklistarnámskeið Leynileikhússins byggjast fyrst og fremst upp á LEIKGLEÐI og frumsköpun. Með leikgleðina að leiðarljósi fara nemendur í grunnatriði í leiklist með hjálp leikja og æfinga. Lögð er áhersla á einbeitingu, að gefa skýr skilaboð, hlustun, samvinnu, uppbyggingu stuttra leikrita og persónusköpun.
Í vikunni hefjast myndlistar- og leiklistarnámskeið haustannar hjá okkur í Klifinu skapandi fræðslusetri. Námskeiðin fara fram í Flataskóla og erum við í óðaönn að koma okkur fyrir í norðurálmu skólans. Við hlökkum mikið til að taka á móti nýjum hópum af skapandi börnum og unglingum næstu dagana. Uppselt er á japanska poppmenningu en nokkur sæti […]
Skráning er hafin á sumarnámskeið Klifsins!! · Hreyfimyndagerð – 9-12 ára· Skapaðu með Procreate – 9-12 ára· Myndasögugerð og persónusköpun – 6-12 ára· Leiklist og framkoma – 9-12 ára· Leikgleði og fjör – 6-9 ára · Skapandi sumarsöngur – 6-12 ára · Myndlist, teikning og málun – 6-9 ára · Myndlist og náttúran – 5-7 […]
Námskeiðið er fyrir krakka sem elska að teikna og skapa. Á námskeiðinu læra nemendur helstu undirstöðuatriði í teikningu og fá tækifæri til að æfa sig í að teikna umhverfi sitt og prófa fjölbreytt efni og verkfæri til listköpunar. Við munum sækja innblástur víða, bæði úti í náttúrunni og inni í kennslustofu, m.a. fólk, dýr, og byggingar.
Þetta námskeið er fyrir káta krakka með fjörugt ímyndunarafl. Við munum fara yfir öll helstu grunnatriði í myndasögugerð. Þau munu byrja á að skapa persónu sem þau vinna svo áfram með. Þau munu skapa umgjörð fyrir persónuna og semja sögu um hana.
Þetta námskeið er ætlað krökkum sem vilja prófa sig áfram í teikningu með ipad. Við munum fara vel yfir forritið procreate sem er fremsta forritið í rafrænni list í dag.
Námskeiðið er fyrir alla krakka sem langar að læra um hvernig teiknimyndir og stuttmyndir verða til. Á námskeiðinu læra nemendur um grunnatriði fjölbreyttra aðferða sem notaðar eru við hreyfimyndagerð.
Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á helstu grunnatriði í andlitsteikningu og persónusköpun. Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að þróa sinn eigin stíl, öðlist skilning á byggingu andlits, andlitshreyfingum og hvernig má vinna með það.
Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á helstu grunnatriði í notkun tússlita. Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að nota tússliti, blanda saman og beita litum eftir litafræði.