Klifið er sem fyrr í samstarfi í við Leynileikhúsið sem mun sjá um leiklistarnámskeið fyrir 2-4 og 5-7 bekk í Garðabæ.
Námskeiðið er kennt 1x í viku í 10x vikur. Önnin endar svo í leikhúsi þar sem afrakstur vinnunnar er sýndur. Ungu leikararnir fá búning og leikhúsförðun og aðstandendur geta komið og séð krakkana blómstra á sviðinu. Samtals er námskeiðið í 11 vikur og 12 klukkustundir alls, þar sem lokatíminn er tvöfaldur.
Öll leiklistarnámskeið Leynileikhússins byggjast fyrst og fremst upp á LEIKGLEÐI og frumsköpun. Með leikgleðina að leiðarljósi fara nemendur í grunnatriði í leiklist með hjálp leikja og æfinga. Lögð er áhersla á einbeitingu, að gefa skýr skilaboð, hlustun, samvinnu, uppbyggingu stuttra leikrita og persónusköpun.
Þegar líða tekur á námskeiðið eru þessi grunnatriði færð yfir í spunavinnu sem á endanum skilar sér í lokasýningu sem nemendur sýna fyrir aðstandendur. Lokasýningin er því byggð upp nær alfarið á spuna og sköpunarkrafti nemenda sem kennari aðstoðar við að púsla saman í leikverk og þar fá allir ungu leikararnir að njóta sín á sinn hátt. Það er mikilvægt að hver nemandi þroskist og vaxi á eigin forsendum, byggi upp sjálfstraust og heilbrigða sjálfsmynd og leiklistin er mjög gott tæki til að ná þeim árangri.
- Mánudaga – kl. 16.10-17.10 – 2.-4. bekkur
- Mánudaga – kl.. 17.20-18.20 – 5.-7. bekkur