Klifið
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
Klifið > Fréttir > Uncategorized > Vornámskeið 2025

Vornámskeið 2025

  • 01/05/2025
  • Posted by: admin42
  • Flokkur: Uncategorized
Engar athugasemdir
Akrýlmálun námskeið

Gefðu sköpunargleðinni lausan tauminn í vor! Skráning er hafin á vornámskeið Klifsins og plássin fyllast hratt. Ef þú hefur áhuga á að dýpka listsköpun þína eða kanna ný mið, skaltu ekki bíða lengi – tryggðu þér sæti sem fyrst!

Hér eru nokkur af spennandi námskeiðunum okkar:

  • Gvassmálun – Fyrir fullorðna
  • Vatnslitun I & II – Fyrir fullorðna
  • Módelteikning – Fyrir fullorðna
  • Teikning – Fyrir fullorðna
  • Akrýlmálun I & II – Fyrir fullorðna
  • Procreate – 13–16 ára
  • Myndlist & málun – 6–9 ára
  • Teikning og myndasögur – 9–12 ára
  • Teikning og myndasögur – 13-16 ára
  • Söngnámskeið – 5–7 ára
  • Söngur, einkatímar – 7–13 ára
  • CVT, einkatímar – 13 ára og eldri
  • Aqua Tabata, Zumba og Yogalates
  • Badminton

Mundu eftir frístundastyrknum – hann nýtist fyrir mörg þessara námskeiða. Þá geta félagsmenn í flestum stéttarfélögum sótt um styrk úr Starfsmenntunarsjóði.

Við hlökkum til að sjá sem flesta og fögnum vorinu saman með sköpun og gleði!

Akrýlmálun Badminton Gítarnámskeið Gvassmálun klifið módelteikning Myndlist myndlistarnámskeið námskeið píanónámskeið Procreate námskeið söngnámskeið teikninámskeið Trommunámskeið vatnslitamálun

Klifið

Klifið býður upp á fjölbreytt skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna.

Virkjaðu sköpunarkraftinn þinn í Klifinu!

Hafðu samband

  • Garðatorg 7
  • klifid@klifid.is

Fylgdu okkur

Leita