Aqua Tabata er kröftug og skemmtileg líkamsrækt í vatni sem byggir á HIIT (High intensity interval training). Æfingar eru framkvæmdar í stuttan tíma í senn með hléum og endurtekið í nokkrum lotum.
Aqua Zumba® öðru nafni Zumba sundlaugarpartý gefur hressilegri líkamsþjálfum nýja merkingu. Gusugangur, teygjur, snúningar, hróp, flaut, hlátur og köll fylgja oft Aqua Zumba tímum.