Nú er sumarið handan við hornið og námskeiðin hver að öðru að klárast hér í Klifinu. Þetta er svo sannarlega búið að vera skemmtilegt og líflegt hér hjá okkur í vor. Sumardaginn fyrsta er frí í Klifinu líkt og í skólum landsins og vonum við að sem flestir fari út og njóti menningarinnar og auðvitað náttúrunnar þennan dag. Barnamenningarhátíð er í fullu fjöri þennan dag og framyfir helgi, frábær afþreying fyrir börn á öllum aldri.
Skráningar eru í fullum gangi fyrir Skapandi Sumarfjör og önnur námskeið í sumar og erum við strax farin að huga að haustinu og þeim námskeiðum sem verða í boði þá. Endilega fylgist með.
Annars óskum við í Klifinu ykkur bara- GLEÐILEGS SUMARS!