Fréttir
Í sumar verður leikjanámskeiðið Skapandi sumarfjör haldið í Klifinu. Boðið er upp á þrjá aldurshópa á námskeiðinu, 4-5 ára, 6-8 ára og 9-12 ára. Námskeiðin eru vikulöng, annaðhvort frá 9-12 eða 13-16 alla dagana. Meginmarkmið námskeiðanna er að efla sköpunargleði og sjálfstæði barnanna. Ýmsar listgreinar verða kynntar, svo sem leiklist, myndlist, tónlist og dans. Námskeiðin fara fram bæði utan- og innandyra í heimkynnum Klifsins að Holtsbúð 87.
Námskeiðið er í umsjón Kristjönu Óskar Kristinsdóttur og Andreu Urðar Hafsteinsdóttur. Þær stöllur eru með mikla reynslu af listum og hafa tekið þátt í að styrkja listalíf í MR á undanförnum árum þar sem þær hafa stundað framhaldsskólanám. Þær stofnuðu meðal annars nýtt leikfélag í MR.
Námskeiðin munu einkennast af mikilli gleði og lögð er áhersla á að hvert og eitt barn fái að njóta sín við að gera það sem því finnst skemmtilegt. Börnin fá tækifæri til að prófa að skapa sína eigin list eins og til dæmis að semja dans, búa til listaverk, gera tónlist með einhverju öðru en hljóðfærum og margt fleira (óvenjulegt). Við viljum fyrst og fremst að börnin skemmti sér vel á meðan þau kanna alla þá möguleika sem listin hefur uppá að bjóða. Skráning á námskeiðin fer fram á vef Klifsins www.klifid.is
Við hlökkum til að sjá sem flesta í Skapandi sumarfjöri!
Andrea Urður og Kristjana Ósk