Skapandi sumarsöngur · 6-9 ára – sumarnámskeið
19.990 kr.
Hefst: 10. júní |
Tími: kl. 9-12 |
Staðsetning: Flataskóli |
Lengd: 4 dagar |
Kennslustundir: 18 |
Aldur: 6-9 ára |
Skapandi sumarsöngur er námskeið fyrir söngelska krakka sem vilja syngja sig í gegnum sumarið. Námskeiðið er hugsað eins og leikjanámskeið með áherslu á söng, leiklist, framkomu og sjálfan sköpunarkraftinn. Hver dagur hefur sitt þema en það eru tvær klukkutíma smiðjur hvern dag. Börnin munu meðal annars læra um grundvallarsöngtækni, stuðning, túlkun og munu semja sjálf lagatexta. Það verður einnig farið í leiklistarleiki sem stuðla að því að börnin brjótist út úr skelinni á sviði.
Reynt verður að vera úti eins mikið og veður leyfir, en meðfram smiðjutímunum verður farið í hópeflisleiki og sungið saman.
Námskeiðinu er skipt upp í hálftíma hópefli og samsöng þegar börnin mæta, svo er klukkutíma smiðjutími, svo er nesti og útivera og að lokum annar klukkutíma smiðjutími.
Við mælum með að börnin komi með hollt og gott nesti fyrir kaffitímann og klædd eftir veðri.
Vinsamlega kynnið ykkur skilmála Klifsins
Um kennara
19.990 kr.
Hefst: 10. júní |
Tími: kl. 9-12 |
Staðsetning: Flataskóli |
Lengd: 4 dagar |
Kennslustundir: 18 |
Aldur: 6-9 ára |