Klifið
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning

Skapandi sumarsöngur · 6-9 ára – sumarnámskeið

Kennarar
Helena Hafsteinsdóttir
Flokkur:
5-9 ára/ Öll námskeið/ sumarnámskeið/
19.990 kr.
Skapandi sumarsöngur

19.990 kr.

SKRÁNING
Hefst: 10. júní
Tími: kl. 9-12
Staðsetning: Flataskóli
Lengd: 4 dagar
Kennslustundir: 18
Aldur: 6-9 ára

ÖRFÁ PLÁSS LAUS !!

Skapandi sumarsöngur er námskeið fyrir söngelska krakka sem vilja syngja sig í gegnum sumarið. Námskeiðið er hugsað eins og leikjanámskeið með áherslu á söng, leiklist, framkomu og sjálfan sköpunarkraftinn. Hver dagur hefur sitt þema en það eru tvær klukkutíma smiðjur hvern dag. Börnin munu meðal annars læra um grundvallarsöngtækni, stuðning, túlkun og munu semja sjálf lagatexta. Það verður einnig farið í leiklistarleiki sem stuðla að því að börnin brjótist út úr skelinni á sviði.

Reynt verður að vera úti eins mikið og veður leyfir, en meðfram smiðjutímunum verður farið í hópeflisleiki og sungið saman.

Námskeiðinu er skipt upp í hálftíma hópefli og samsöng þegar börnin mæta, svo er klukkutíma smiðjutími, svo er nesti og útivera og að lokum annar klukkutíma smiðjutími.

Við mælum með að börnin komi með hollt og gott nesti fyrir kaffitímann og klædd eftir veðri.

  • 10-13 júní  kl. 9-12 – Skapandi sumarsöngur 6-9 ára 
​Hádegisgæsla: Hægt er að skrá börn í hádegisgæslu milli kl. 12:00-13:00 á meðan námskeiðunum stendur. Passið að velja rétt tímabil inni í Abler, hægt er að finna hádegisgæsluna undir sumarnámskeið Klifsins í Abler. Tilvalið fyrir þau börn sem eru á námskeiðum bæði fyrir og eftir hádegi hjá Klifinu. ​
Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að ná í Abler appið en öll samskipti og upplýsingar varðandi námskeiðið munu fara þar fram.
Vinsamlega kynnið ykkur skilmála Klifsins

Um kennara

Helena Hafsteinsdóttir
Leiklistarkennari

19.990 kr.

SKRÁNING
Hefst: 10. júní
Tími: kl. 9-12
Staðsetning: Flataskóli
Lengd: 4 dagar
Kennslustundir: 18
Aldur: 6-9 ára

Klifið

Klifið býður upp á fjölbreytt skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna.

Virkjaðu sköpunarkraftinn þinn í Klifinu!

Hafðu samband

  • Garðatorg 7
  • klifid@klifid.is

Fylgdu okkur

Leita