Í vikunni hefjast myndlistar- og leiklistarnámskeið haustannar hjá okkur í Klifinu skapandi fræðslusetri. Námskeiðin fara fram í Flataskóla og erum við í óðaönn að koma okkur fyrir í norðurálmu skólans. Við hlökkum mikið til að taka á móti nýjum hópum af skapandi börnum og unglingum næstu dagana. Uppselt er á japanska poppmenningu en nokkur sæti eru laus á leiklistarnámskeiðin og myndlist barna. Í lok nóvember verður síðan uppskeruhátíð í Klifinu og verður spennandi að sjá afraksturinn hjá ungu listamönnunum.