Það hefur verið líflegt um að lítast í Klifinu í haust. Börn jafnt sem fullorðnir koma vikulega á ýmis námskeið s.s. í hljóðfæraleik, myndlist, tölvugrafík, tálgun, Zumba, badminton, leiklist o.fl. Á hverjum miðvikudegi mætir síðan nýr hópur af hressum konum á námskeiðið nýju fötin keisarans, þar sem kaffipokar fá nýtt hlutverk. Sumar konur koma langt að til að fara á námskeiðið en flestar eru þó af höfðuborgarsvæðinu. Námskeiðið hefur aldeilis slegið í gegn og verður gaman að fylgjast með afrakstrinum hjá þeim fjölmörgu konum sem hafa lagt leið sína í Klifið í haust.