Klifið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
222 talg
27
mar
Gæðastund barna og fullorðinna

Þann 18. apríl hefst á ný kynslóðanámskeiðið tálgað í tré með Ólafi Oddssyni skógræktarfræðingi. Námskeiðið fékk afar góðar viðtökur síðastliðið vor, en Ólafur er frumkvöðull á sviði útikennslu og hefur haldið fjölmörg tálgunarnámskeið. Í lok námskeiðs verður farið í ævintýraferð upp í Kjós þar sem Ólafur hefur ræktað sinn eigin skóg síðastliðna áratugi.  Skráning er hafin á námskeiðið.

Flokkur: Fréttir,
222-bergros
21
mar
Kvöldstund með prjónahönnuði

Skáldað í ull – 27. mars MEÐ PRJÓNAHÖNNUÐI – EIN KVÖLDSTUND Bergrós Kjartansdóttir prjónahönnuður kynnir og kennir prjónahönnun sína Heimsljós og Norðurljós. Flíkurnar hafa notið mikilla vinsælda prjónafólks og birtust síðastliðið haust í prjónablaðinu Lopa 31, frá Ístex.Bergrós segir frá kveikjunni að flíkunum og þeim leiðum sem hún fer í sinni hönnun. Þátttakendur fá hér […]

Flokkur: Fréttir,
Töfrabragðanámskeið
31
jan
Besti töframaður landsins

Einar Mikael besti töframaður landsins að okkar mati er með frábær námskeið fyrir börn, þau læra ekki aðeins að galdra og töfra, þau læra að koma fram og sýna fyrir framan fullan sal af fólki listir sínar. Einar er með námskeið fyrir byrjendur og lengra komna á miðvikudögum hjá Klifinu fram á vor.Fyrir áramót þá […]

Flokkur: Fréttir,
11
jan
Nýr vefur Klifsins og skapandi vorönn framundan

KLIFIÐ fræðslusetur er nú að hefja sínu fjórðu önn þökk sé áhugasömum Garðbæingum um skapandi menningu. Nýr vefur Klifsins lítur dagsins ljós í vikunni. Leitar-og skráningarkerfi hefur verið endurbætt þannig að viðskiptavinir ættu nú að eiga auðveldara með að átta sig á hvað er í boði hverju sinni.   Í vor verður sem fyrr fjöldi námskeiða […]

Flokkur: Fréttir,
28
des
Jólakveðja Klifsins
Flokkur: Fréttir,
Upprennandi listamenn að stíga sín fyrstu skref.
21
sep
Myndlist og töfrabrögð

Í vikunni hófst töfrabragðanámskeið þar sem 16 mjög áhugasamir nemendur lærðu hina ýmsu spilagaldra.Myndlistarnámskeiðin okkar hófust einnig vikunni og ekki annað hægt að segja en byrjunin lofi góðu. Á myndinni má sjá upprennandi listamenn að stíga sín fyrstu skref. Þeir unnu meðal annars með blek og bjuggu til skrýtin skordýr. Leiklistarnámskeiðin hefjast einnig í vikunni.  Mikil […]

Flokkur: Fréttir,
Barna og unglinganámskeið
12
sep
Barna- og unglinganámskeið hefjast í næstu viku

Í vikunni fara flest barna- og unglinganámskeið Klifsins af stað. Það er orðið fullt á tálgað í tré, leikjaforritun og eldfjallavísinda námskeiðið. Enn er hægt að bóka sig á hin námskeiðin. Við viljum benda á að breyta þurfti tímasetningum á leiklistarnámskeiðunum og vísindanámskeiðunum.

Flokkur: Fréttir,
Skráning er hafin
23
ágú
Barna- og unglinganámskeið haust 2011

Búið er að opna fyrir skráningar á barna- og unglinganámskeið Klifsins. Námskeið fyrir fullorðna eru í undirbúningi og munu nýjar námskeiðslýsingar birtiast á heimsíðunni næstu daga. Meðal nýjunga hjá okkur er t.d. íkonamálun, skreytilistanámskeið og ýmis lista- og handverksnámskeið.

Flokkur: Fréttir,
07
júl
Kajaknámskeið í júlí

Í blíðviðrinu 14. júlí sigldum við á Arnarnesvogi, fórum í land á Arnarnesi og borðuðum nesti og sigldum svo um voginn í góðum félagsskap. Við sólsetur skelltu sumir þátttakendur sér í sjóinn og æfðu félagabjörgun. Aðrir fylgdust með og höfðu gaman af.  Við ströndina mátti heyra ljúfa djasstóna frá kaffihúsinu Himni og haf.

Flokkur: Fréttir,
  • Previous
  • 1
  • …
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • Next

Klifið

Klifið býður upp á fjölbreytt skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna.

Virkjaðu sköpunarkraftinn þinn í Klifinu!

Hafðu samband

  • Garðatorg 7
  • 565 0600
  • klifid@klifid.is

Fylgdu okkur

Leita