Klifið
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
jolakort-vef 2015
23
des
Gleðileg jól

  Búið er að opna fyrir skráningar á vornámskeiðin á skráningarvef Klifsins. Fleiri námskeið eiga eftir að bætast á listann í byrjun janúar, en þau eru enn í smíðum.  Hægt er að nýta hvatapeninga til að greiða niður námskeiðsgjöldin frá og með 1. janúar hjá flestum sveitarfélögum.    

Flokkur: Fréttir,
08
des
Jón Jónsson gestakennari á Söngnámskeiði Klifsins

Jón Jónsson kom sem gestakennari á söngnámskeið Klifsins á dögunum. Hann gjörsamlega heillaði litlu söngvarana sem fengu bæði að syngja fyrir hann og með honum. Í lokin fengu allir knús og góð ráð fyrir söngferilinn.   Jón Jónsson gestakennari á söngnámskeiði Klifsins Jón Jónsson kom sem gestakennari á söngnámskeið Klifsins á dögunum. Hann gjörsamlega heillaði […]

Flokkur: Fréttir,
Tags: Jón Jónsson, söngkennsla, söngnámskeið,
teikna
01
des
Myndlist og teikning fellur niður í dag

Myndlist- og teikning fellur niður í dag, 1. desember vegna veðurs.  Uppbótartími verður mánudaginn 7. desember. Síðasti tími annarinnar verður 8. desember og þá er jafnframt myndlistarsýning í lok tímans fyrir foreldra og fjölskyldur unga myndlistarfólksins. Verður nánar auglýst síðar.

Flokkur: Fréttir,
Screen Shot 2015-11-30 at 12.18.04
30
nóv
Annarlok í Klifinu

Þessa dagana líður að annarlokum á haustnámskeiðum Klifsins.  Mikið hefur verið brallað í Klifinu í haust og starfið líflegt sem endranær. Spennandi vika er framundan í Klifinu og á dagskrá eru danssýningar, gítartónleikar og söngtónleikar. Í næstu viku verða leiklistarsýningar, badmintonmót, myndlistarsýning og píanótónleikar. Haustönnin hefur gengið mjög vel og var góð þátttaka á námskeiðunum.  Klifið […]

Flokkur: Fréttir,
Tags: badmintonmót, danssýningar, gítartónleikar, leiklistarsýningar, myndlistarsýning, söngtónleikar, tónleikar,
IMG 3549
11
nóv
Vel heppnuð helgarsmiðja í stuttmyndagerð

Öflugur hópur ungra kvikmyndagerðakvenna tók þátt í helgarsmiðju í stuttmyndagerð hjá Gunnari Guðmundssyni leikstjóra í byrjun nóvember. Á námskeiðinu fór hinn reyndi leikstjóri yfir alla þætti kvikmynda með ungviðinu og unnu stelpurnar hratt og örugglega í kapp við klukkuna. í lok seinni dagsins var haldin frumsýning fyrir fjölskyldur þeirra á fullbúnum myndum. Fyrri deginum var skipt […]

Flokkur: Fréttir,
26
okt
Það er ekki vetrarfrí á námskeiðum Klifsins

Námskeið Klifsins halda sínu striki í vikunni 26. – 31. október þar sem ekki eru vetrarfrí í grunnskólum Garðabæjar á haustönn. Því eru námskeiðin á sínum stað í dagskránni hjá okkur.  Nú er komið að miðbiki annarinnar í Klifinu og sköpunargleðin og ímyndunaraflið við völd á námskeiðunum.      

Flokkur: Fréttir,
11052416 10154192807207977 3803590590718261043 n
25
sep
Skapandi hugsun skiptir máli í lífinu

Þann 14. september síðastliðinn birtist umfjöllun í Morgunblaðinu um listnámskeiðin í Klifinu. Hér fyrir neðan má sjá fréttina.

Flokkur: Fréttir,
Tags: hönnun, Myndlist, skapandi hugsun,
IMG 0647
27
ágú
Dans stöff og kríladans og fleiri nýjungar í Klifinu

Dansnámskeið Klifsins hafa verið vinsæl undanfarin misseri. Fleiri og fleiri eru farnir að uppgötva hversu gaman það er að dansa. Í dansinum eflum við styrk, fáum hjartað til að slá örar og verðum liprari og mýkri í hreyfingum. Dansnámskeiðin í Klifinu eru aðlöguð að aldri þátttakenda og áhugasviði. Þátttakendur á öllum námskeiðunum taka virkan þátt […]

Flokkur: Fréttir,
21
ágú
Skráning

Skráning í Nóra

Flokkur: Uncategorized,
  • Previous
  • 1
  • …
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • …
  • 18
  • Next

Klifið

Klifið býður upp á fjölbreytt skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna.

Virkjaðu sköpunarkraftinn þinn í Klifinu!

Hafðu samband

  • Garðatorg 7
  • klifid@klifid.is

Fylgdu okkur

Leita