Klifið býður hópum að taka á leigu badmintonvöll í íþróttamiðstöð Sjálandsskóla. Tilvalið er fyrir vinahópa, vinnufélaga, saumaklúbba eða fjölskyldur að eiga frátekinn völl einu sinni í viku. Pláss er fyrir fjóra iðkendur á einum velli í einu svo allt að 5 aðilar geta verið saman í hópi. Í salnum eru 3 vellir svo pláss er fyrir þrjá hópa í einu.
Hefð hefur skapast fyrir skemmtilegum badmintonmótum hjá badmintonhópunum. Haldin eru bæði jóla- og páskamót þar sem iðkendur keppa innbyrðis.