Þann 11. apríl síðastliðinn fór fram fjórða badmintonmót Klifsins. Mikil gleði ríkti á mótinu að venju og er óhætt að segja að jákvæðni og gleði hafi verið í fyrirrúmi. Keppt var tvíliðaleik og skiptust liðin ýmist í karlalið, blönduð lið og kvennalið. Sigurvegar mótsins voru Steinarnir, í öðru sæti urðu Pillurnar og Brons lenti í þriðja sæti. Verðlaun voru einnig veitt í flokkunum; að halda flugu lengst á loft, bestu búningarnir, mesta leikgleðin og tilþrif mótsins. Við erum strax farnar að hlakka til næsta móts!