Fréttir
Þessa dagana líður að annarlokum á haustnámskeiðum Klifsins. Mikið hefur verið brallað í Klifinu í haust og starfið líflegt sem endranær. Spennandi vika er framundan í Klifinu og á dagskrá eru danssýningar, gítartónleikar og söngtónleikar. Í næstu viku verða leiklistarsýningar, badmintonmót, myndlistarsýning og píanótónleikar. Haustönnin hefur gengið mjög vel og var góð þátttaka á námskeiðunum. Klifið er smátt og smátt að koma sér fyrir í Holtsbúð 87 (Klaustrinu) sem eru ný heimkynni Klifsins. Í vor er stefnt að á flest námskeið Klifsins færist í Holtsbúðina.
Vornámskeiðin eru smátt og smátt að koma inn á vefinn. Þeir sem ætla að nýta hvatapeningana næsta árs til þess að greiða fyrir námskeiðsgjald vorannar geta haft samband í gengum netfangið skraning@klifid.is, þar sem ekki er hægt að ganga frá greiðslu námskeiðsgjalda ef nýta á hvatapeninga fyrir 2016 fyrr en eftir áramótin.