Það hryggir okkur dálítið að horfa fram áframhaldandi lokun hjá okkur í Klifinu, en við verðum að standa saman í samfélaginu og vinna bug á þessari veiru.
Við vonum svo sannarlega að smitum muni fækka á næstu tveimur vikum og við getum hafið starfsemi á ný.
Námskeiðin frestast eingöngu, engir tímar falla niður heldur sjáum við fram á að færa kennslu inn í Desember, Janúar og í sumum tilvikum aðeins inn í Febrúar.
Svo stefnum við að því að hefja nýja önn í Febrúar/Mars.
Við óskum ykkur góðra stunda með ykkar nánasta fólki, með nægri útiveru, dass af bakstri og helling af kósý.