Við viljum byrja á því að þakka fyrir frábærar viðtökur á námskeiðum í Klifinu í haust. Skráning var með besta móti og fullt á flest okkar námskeið.
Vissulega höfum við þurft að taka tillit til ýmissa þátta og hafa námskeið og kennsla þurft að frestast örlítið vegna hertrar aðgerðar Garðabæjar vegna Covid. En því tökum við bara með jafnaðargeði og þolinmæði og hlökkum bara enn meir að hitta alla á ný.
Það er mikil ánægja fólgin í því að fara af stað með nýjar hugmyndir – ný námskeið og er ótrúlega gleðilegt að segja frá því að uppbókað er á námskeiðið Hönnunarskólinn sem unninn er í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og vonum við að önnin gangi vel og geri okkur kleift að bjóða fleiri aldurshópum á þetta skemmtilega og skapandi námskeið eftir áramót.
Við hlökkum til að klára þetta óvenjulega ár á skemmtilegan og skapandi hátt.