Klifið skapandi fræðslusetur vekur athygli á því að miðasala er hafin á nemendasýningu Plie listdansdeildar Klifsins. Sýningin fer fram í Salnum í Kópavogi, laugardaginn 5. apríl nk. Mikil tilhlökkun er hjá nemendum vegna sýningarinnar og eigum við sem eldri erum eflaust eftir að njóta þess líka að fá að sjá ungu dansarana uppskera á sviðinu í Salnum.
Haldnar verða tvær sýningar, sú fyrri fer fram kl. 11:30 og seinni sýningin verður kl. 13:00. Búið er að skipta nemendum niður á sýningarnar. Við bendum foreldrum að hafa samband við ballet kennara Klifsins ef einhverjar spurningar vakna vegna sýningarinnar.
Miðaverð á sýninguna er kr. 1500. Hér er tengill inn á miðasölu nemendasýningarinnar hjá Salnum og Miði.is.