Nú stendur yfir skráning á sumar dansnámskeið Plie listdansdeildar Klifsins fyrir 7 – 10 ára börn.
Á dansnámskeiðunum eru kenndar fimm dansgreinar. Ballet, modern, jazz, stepp og Broadway dansar.
Námskeiðunum er skipt markvisst niður þannig að hver dansgrein fái að njóta sín og henni gerð góð skil. Krakkarnir fá að kynnast tækni, dansstíl og sögu hverrar dansgreinar. Við verðum ekki einungis inni í danssal heldur munum við líka dansa utandyra og fara í ýmsa danstengda leiki.
Krakkarnir þurfa ekki að hafa grunn í dansi.
Dagsetningar og tími.
Námskeiðin eru þrjú og þau eru óháð hvert öðru. Hægt er að velja eina staka viku, tvær vikur eða þrjár vikur.