Skrifstofa Klifsins verður lokuð þriðjudaginn 2. október og miðvikudaginn 3. október vegna námsferðar starfsmanna. Við verðum ekki við símann þessa daga, en reynum að svara tölvupósti eftir fremsta megni á klifid@klifid.is.
Ferðinni er heitið í Skálholt þar sem við munum njóta leiðsagnar fræðimannanna Etienne og Beverly Wenger-Trayner, en þau eru stödd á Íslandi um þessar mundir. Þau munu einnig flytja erindi á ráðstefnu um upplýsingatækni í fullorðinsfræðslu sem verður haldinn 4. október nk. á vegum Háskóla Íslands.