2013
Vegna fjölda áskorana verður haldið þriggja vikna Aqua Zumba námskeið í Klifinu í maí og júní. Námskeiðið hefst 28. maí og stendur til 13. júní. Það fer fram í Íþrótta og sundmiðstöð Sjálandsskóla og verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá 19:30 – 20:15. Leiðbeinandi á námskeiðinu er sem fyrr Kristbjörg Ágústsdóttir. Skráning fer fram á […]
Næstu fjórar vikurnar verður haldið kassabílanámskeið í Klifinu skapandi fræðslusetri. Þá gefst fjölskyldum tækifæri til þess mynda ,,hönnunarteymi“ þar fullorðnir og börn smíða saman kassabíl eftir eigin hugmyndum. Námskeiðið fer fram á miðvikudögum kl. 17:00 – 19:00 í smíðastofu Flataskóla og endar á kassabílaralli. Árni Már Árnason smíðakennari í Flataskóla leiðbeinir á kassabílanámskeiðinu. Enn eru […]
Klifið kíkti í morgun á yndislegar litlar ballerínur sem voru að æfa sig fyrir sýninguna sem verður í lok apríl. Plié Listdansdeild Klifsins er með vor og sumarstarf í undirbúningi. Eftirfarandi námskeið verða í boði: Vornámskeið:6 vikna ballett námskeið fyrir 3-6 ára hefst 4 maí. Kennt er á laugardögum.3-4 ára kl 11.155-6 ára […]
Dagana 25. mars – 2. apríl er páskaleyfi hjá Klifinu. Því verða engin námskeið haldin þá viku. Skrifstofa Klifsins er einnig lokuð á meðan á páskaleyfinu stendur. Námskeiðin hefjast á nýjan leik 3. apríl. Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra páska. Kær kveðja, Ásta og Ágústa
Í Klifinu gefst fólki á öllum aldri kostur á að taka þátt í fjölbreyttum námskeiðum sem styðja við virkan lífsstíl, bæði hvað varðar frístundir og hæfniþróun. Allir eru velkomnir í Klifið óháð menntun. Við vonum að þú finnir námskeið sem veita þér innblástur og gleði! Hér getur þú skoðað bæklinginn á rafrænu formi. Skráning á námskeið: […]
Við höfum nú stofnað Plié Listdansdeild Klifsins ásamt Elvu Rut og Eydísi Örnu sem munu hafa umsjón yfir kennslunni. Til að byrja með ætlum við að bjóða upp á ballett fyrir 3-4 ára og 5-6 ára börn. Námskeiðin verða húsnæði heilsuræktar jafnvægis í Kirkjulundi 19. Hér er hægt að sjá nánari upplýsingar um námskeiðin
Klifið óskar ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári. Næstu daga munu vornámskeiðin birtast á vefnum eitt af öðru. Enn er hægt að koma ábendingum áleiðis um áhugaverð námskeið og leiðbeinendur. Við hlökkum til að sjá sem flesta upplifa, læra og lifa í Klifinu á nýju ári.