janúar
Í Klifinu gefst fólki á öllum aldri kostur á að taka þátt í fjölbreyttum námskeiðum sem styðja við virkan lífsstíl, bæði hvað varðar frístundir og hæfniþróun. Allir eru velkomnir í Klifið óháð menntun. Við vonum að þú finnir námskeið sem veita þér innblástur og gleði! Hér getur þú skoðað bæklinginn á rafrænu formi. Skráning á námskeið: […]
Við höfum nú stofnað Plié Listdansdeild Klifsins ásamt Elvu Rut og Eydísi Örnu sem munu hafa umsjón yfir kennslunni. Til að byrja með ætlum við að bjóða upp á ballett fyrir 3-4 ára og 5-6 ára börn. Námskeiðin verða húsnæði heilsuræktar jafnvægis í Kirkjulundi 19. Hér er hægt að sjá nánari upplýsingar um námskeiðin
Klifið óskar ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári. Næstu daga munu vornámskeiðin birtast á vefnum eitt af öðru. Enn er hægt að koma ábendingum áleiðis um áhugaverð námskeið og leiðbeinendur. Við hlökkum til að sjá sem flesta upplifa, læra og lifa í Klifinu á nýju ári.