Teikning 10-12 ára
57.500 kr.
Hefst: 29. september |
Tími: mánudagar kl. 17:45-19:15 |
Staðsetning: Garðatorg 7 |
Lengd: 10 vikur |
Kennslustundir: 23 |
Aldur: 10 - 12 ára |
Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á helstu grunnatriði í teikningu, við förum yfir skyggingu, hlutföll og uppbyggingu forma og sem og uppsetningu verka sem verða nýtt í áframhaldandi sköpun.
Sköpunargleði nemenda verður virkjuð í sjálfstæða sköpun þar sem grunnundirstöðurnar nýtast þeim við að teikna það sem vekur áhuga hjá þeim, hvort sem þau sækja innblástur í raunheima, í eigið líf, í bækur, sjónvarpsefni eða hvaða áhugamál sem er. Lagt er upp með nemendur fylgi eigin innsæi við við persónu og karaktersköpun í verkum sínum.
Unnið verður með blýanta og penna í grunninn en nemendur fá að prófa sig áfram með margskonar spennandi efni og verkfæri sem eru á staðnum.
Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að ná í Abler appið en öll samskipti og upplýsingar varðandi námskeiðið munu fara þar fram.
Vinsamlega kynnið ykkur skilmála Klifsins
Um kennara
57.500 kr.
Hefst: 29. september |
Tími: mánudagar kl. 17:45-19:15 |
Staðsetning: Garðatorg 7 |
Lengd: 10 vikur |
Kennslustundir: 23 |
Aldur: 10 - 12 ára |