Hið sívinsæla sumarnámskeið Klifsins Skapandi sumarfjör, verður í boði fyrir börn á aldrinum 8 til 11 ára sumarið 2024. Skapandi sumarfjör er skemmtileg leikja- og listasmiðja þar sem börn fá að leysa eigin sköpunarkraft úr læðingi á sviði vísinda, myndlistar, leiklistar, dans og tónlistar. Leikir og hópefli verða ríkjandi og munu námskeiðin einkennast af mikilli sköpunar- og leikgleði
Námskeiðin eru kennd bæði úti og inni.
- 1-5 júní – kl. 13-16 fyrir 8-11 ára
Nemendur mæta með hollt og gott nesti og mikilvægt er að klæða sig eftir veðri hvern dag.