Badminton í góðra vina hópi er sannkölluð næring fyrir líkama og sál. Klifið býður hópum að taka á leigu badmintonvöll í íþróttamiðstöð Sjálandsskóla. Tilvalið er fyrir vinahópa, vinnufélaga, saumaklúbba að eiga frátekinn völl einu sinni í viku. Pláss er fyrir fjóra iðkendur á einum velli í einu. Pláss er fyrir þrjá hópa í senn þar sem þrír vellir eru í salnum.
Tímabil haust 2024
Vorum að bæta við tímum á laugardögum kl. 11-12 og föstudögum kl. 17-18
Áhugasamir geta sent póst á klifid@klifid.is hafi þeir áhuga
Mánudagshópar: 20 skipti – frá 6. jan – 26. maí. Verð kr. 103.900
- Mánudagur kl 20:00-21:00
- Mánudagur kl 21:00-22:00
Fimmtudagshópar: 17 skipti frá 9. sep – 22. maí. Verð kr. 88.900
- Fimmtudagur kl 20:00-21:00
- Fimmtudagur kl 21:00-22:00
Athugið verðið miðast við hvern völl og deilist því niður á þátttakendur á hverjum velli fyrir sig. Dæmi ef fjórir eru saman með völl þá greiðir hver þátttakandi c.a. 1.300 kr fyrir skiptið
Einn iðkandi sagðist ,,vera á landsliðsæfingu“ þegar hann var spurður út í badmintontímana og annar sagði badmintonið vera heilagan tíma í dagskrá vikunnar. Margir iðkendur koma ár eftir ár og komast færri að en vilja.
Senda þarf tölvupóst á klifid@klifid.is og tiltaka nafn og netfang meðlima hópsins við skráningu. Greiðsla fer svo fram í gegnum Sportabler.