Klifið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
Upprennandi listamenn að stíga sín fyrstu skref.
21
sep
Myndlist og töfrabrögð

Í vikunni hófst töfrabragðanámskeið þar sem 16 mjög áhugasamir nemendur lærðu hina ýmsu spilagaldra.Myndlistarnámskeiðin okkar hófust einnig vikunni og ekki annað hægt að segja en byrjunin lofi góðu. Á myndinni má sjá upprennandi listamenn að stíga sín fyrstu skref. Þeir unnu meðal annars með blek og bjuggu til skrýtin skordýr. Leiklistarnámskeiðin hefjast einnig í vikunni.  Mikil […]

Flokkur: Fréttir,
Barna og unglinganámskeið
12
sep
Barna- og unglinganámskeið hefjast í næstu viku

Í vikunni fara flest barna- og unglinganámskeið Klifsins af stað. Það er orðið fullt á tálgað í tré, leikjaforritun og eldfjallavísinda námskeiðið. Enn er hægt að bóka sig á hin námskeiðin. Við viljum benda á að breyta þurfti tímasetningum á leiklistarnámskeiðunum og vísindanámskeiðunum.

Flokkur: Fréttir,
Skráning er hafin
23
ágú
Barna- og unglinganámskeið haust 2011

Búið er að opna fyrir skráningar á barna- og unglinganámskeið Klifsins. Námskeið fyrir fullorðna eru í undirbúningi og munu nýjar námskeiðslýsingar birtiast á heimsíðunni næstu daga. Meðal nýjunga hjá okkur er t.d. íkonamálun, skreytilistanámskeið og ýmis lista- og handverksnámskeið.

Flokkur: Fréttir,
07
júl
Kajaknámskeið í júlí

Í blíðviðrinu 14. júlí sigldum við á Arnarnesvogi, fórum í land á Arnarnesi og borðuðum nesti og sigldum svo um voginn í góðum félagsskap. Við sólsetur skelltu sumir þátttakendur sér í sjóinn og æfðu félagabjörgun. Aðrir fylgdust með og höfðu gaman af.  Við ströndina mátti heyra ljúfa djasstóna frá kaffihúsinu Himni og haf.

Flokkur: Fréttir,
24
jún
Skipulagsdagar í júní

Klifið vinnur nú að undirbúningi haustannar. Í september verður opnað fyrir skráningar á fjölbreyttum námskeiðum fyrir fólk á öllum aldri. Ef þú ert með hugmyndir að áhugaverðum námskeiðum eða veist af spennandi leiðbeinendum sem þú telur að eigi erindi í Klifið máttu koma ábendingum á framfæri til okkar á klifid@klifid.is 

Flokkur: Fréttir,
eldflaugar
03
jún
Eldflaugasnillingar

Ótrúlega flottir drengir skutu upp sinni fyrstu eldflaug í gær á lokadegi vísindanámskeiðsins. Það var haldin eldflaugasýning fyrir fjölskyldu og þá sem áttu leið hjá.

Flokkur: Fréttir,
20
maí
Norðurlandaferð Klifsins

Ferð til Norðurlanda Vikuna 23. – 27. maí verðum við Klifskonur staddar í heimsókn hjá vinabæjum Garðabæjar í Danmörku og í Finnlandi.  Ætlunin er að skoða fræðslusetur þar í landi og safna að okkur góðum hugmyndum fyrir næsta starfsár Klifsins.  Við mætum hressar og uppfullar af nýjum hugmyndum strax í byrjun júní. Ásta og Ágústa                                                                                                              

Flokkur: Fréttir,
  • Previous
  • 1
  • …
  • 10
  • 11
  • 12

Klifið

Klifið býður upp á fjölbreytt skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna.

Virkjaðu sköpunarkraftinn þinn í Klifinu!

Hafðu samband

  • Garðatorg 7
  • 565 0600
  • klifid@klifid.is

Fylgdu okkur

Leita