Klifið
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
25
júl
Framundan í Klifinu

Haustnámskeið Klifsins verða sem fyrr með fjölbreyttu sniði, við erum þessa dagana að setja námskeiðin á vef Klifsins. Það sem verður í boði á haustönn er m.a. Myndlistarnámskeið Gítarnámskeið Bassanámskeið Trommunámskeið píanónámskeið Leiklistarnámskeið Myndlistarnámskeið Fjársjóðsleitin Söng og hugræktarnámskeið Söngnámskeið Dans og ballettnámskeið Agua Zumba Badminton Uppfinninganámskeið og margt fleira 🙂

Flokkur: Fréttir,
02
júl
Sumarfrí hafið

Skrifstofa Klifsins er lokuð í júlí.  Við opnum aftur eftir verslunarmannahelgi.  

Flokkur: Fréttir,
sumardans 2014
09
jún
Sumarið er komið í Klifinu

Sumarnámskeið Klifsins hefjast 10. júní. Litli uppfinningaskólinn 1a hefst kl. 8:30 og stendur yfir til kl. 12:30 alla dagana. Litli uppfinningaskólinn verður aftur á dagskrá eftir verslunarmannahelgi og hefst hann á nýjan leik þann 6. ágúst og stendur hann yfir til 15. ágúst.  Enn eru laus pláss á Litla uppfinningaskólann í ágúst, en uppselt er í skólann […]

Flokkur: Fréttir,
hetjuspil-lokatimi vef
28
maí
Sumargleði og sköpun í Klifinu

Í vikunni lýkur fjórða starfsári Klifsins skapandi fræðsluseturs í Garðabæ. Við endum viðburðarríkt vetrarstarfið með kassabílaralli, sólarskoðun, hlutverkaleikjum og dansi.   Á undanförnum árum hefur hugmyndafræði Klifsins verið í stöðugri mótun og þróun. Klifið er fræðslusetur sem leggur áherslu á fjölbreytt og skapandi námskeið og er sérstaða Klifsins á sviði nýsköpunar og skapandi greina. Áhersluatriði […]

Flokkur: Fréttir,
Tags: dansi, handverki o.fl. hæfniþróun, hugmyndafræði, klifið, leiklist, Myndlist, sjálfstyrkingu, sköpun, spuna, tónlist, vísindum,
300 dans modern
28
apr
Leiksýning og fjöldi nýrra námskeiða að hefjast

Þessa dagana tökum við á móti nýjum þátttakendum á fjölmörg vornámskeið sem hefjast eftir páska. Síðastliðinn laugardag mættu ungir dansarar í ballet og breakdans og í dag hefst hlutverkaspilið fyrir unglinga (2 sæti laus).  Á morgun, þriðjudag hefjast hetjuspilið fyrir 10 – 12 ára (3 sæti laus) og spunadansnámskeið fyrir 6 -12 ára. Á miðvikudag mætir […]

Flokkur: Fréttir,
Jkov-mynd
21
apr
Dagskrá 2013-2014

Skólaárið 2013 – 2014 eru tvö verkefni einkum í forgrunni í Menntaklifinu. Það er annars vegar Sprotasjóðsverkefnið Jafnrétti, kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ og hins vegar Comenius Regio samstarfsverkefni grunnskólanna í Garðabæ, Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Klifsins við breska sveitarfélagið Southend-on-Sea. Í þessum tveimur verkefnum er samstarf skólafólks og fagfólks sem vinnur […]

Flokkur: Fréttir,
Tags: áhugafólk, jafnrétti, kynheilbrigði og velferð, Menntaklif, samstarfsverkefni, skólasamfélagið,
IMG 8165
15
apr
Páskafrí í Klifinu

Dagana 14. – 21. apríl er páskafrí í Klifinu.  Námskeiðin hefjast á nýjan leik þriðjudaginn 22. apríl.  Við óskum viðskiptavinum Klifsins gleðilegra páska og hlökkum til að sjá sem flesta á vornámskeiðum Klifsins sem hefjast hvert af öðru í lok apríl, byrjun maí.

Flokkur: Fréttir,
300-fafu
11
apr
SUMARNÁMSKEIÐ KLIFSINS

Í sumar verður Klifið með annarsvegar dansnámskeið fyrir 7-12 ára í júni frá kl. 13-16 og hins vegar Litla uppfinningaskólann fyrir krakka sem vilja virkja hugvitið. Sjá nánar um námskeiðin hér

Flokkur: Fréttir,
nemendasýning balletsýning
07
apr
Nemendasýning Plié listdansdeildar Klifsins

Um helgina sýndu rúmlega 120 dansnemendur afrakstur vetrarins fyrir framan fullan sal af vinum og vandamönnum í Salnum í Kópavogi.  Við í Klifinu þökkum öllum gestum kærlega fyrir komuna og dönsurunum okkar dásamlegu þökkum við fyrir stórkostlega sýningu.  Hér er hægt að sjá fleiri myndir frá sýningunni smella hér

Flokkur: Fréttir,
  • Previous
  • 1
  • …
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • …
  • 18
  • Next

Klifið

Klifið býður upp á fjölbreytt skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna.

Virkjaðu sköpunarkraftinn þinn í Klifinu!

Hafðu samband

  • Garðatorg 7
  • klifid@klifid.is

Fylgdu okkur

Leita