Klifið
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
  • Sumarnámskeið
  • Námskeið
  • Klifið
  • Skráning
04
ágú
UNDIRBÚNINGUR HAUSTANNAR HAFINN

Nú styttist í að haustönn Klifsins líti dagsins ljós. Starfsfólk skrifstofu er komið til starfa á ný eftir sumarleyfi og munu námskeið vetrarins birtast eitt af öðru inni á vefnum næstu daga.  Við vekjum athygli á því að við erum að innleiða nýtt skráningarkerfi, Nóra kerfið og erum við að vinna í þvi að setja […]

Flokkur: Fréttir,
Tags: haustönn 2015, Klfiið skapandi fræðslusetur,
13
jún
Skrifstofa Klifsins lokuð 15. – 18. júní

Skrifstofa Klifsins er lokuð dagana 15. – 18. júní. Skrifstofan opnar á nýjan leik föstudaginn 19. júní. Fyrirspurnum er svarað í gegnum netfangið klifid@klifid.is  

Flokkur: Fréttir,
300 litliuppf
18
maí
SUMARNÁMSKEIÐ KLIFSINS 2015

Skráning er hafin á sumarnámskeið Klifsins sem verða í júní og ágúst.  Í júní bjóðum við upp á Litla uppfinningaskólann fyrir hugmyndaríka krakka, dansnámskeið og einkatíma í gítar. Litli uppfinningaskólinn verður í júní í Garðabæ og í Hafnarfirði í ágúst.  Smelltu hér til að sjá nánari lýsingu á sumarnámskeiðunum. 

Flokkur: Fréttir,
DSC 0029
10
apr
Ný námskeið að hefjast í Klifinu

Skráning stendur nú sem hæst á vornámskeið Klifsins sem hefjast eftir páska. Fjölmörg skemmtileg námskeið eru í boði að venju. Þessa dagana er mörgum námskeiðum sem hófust í byrjun árs að ljúka með tilheyrandi tónleikum og sýningum.  Þann 27. mars sl. hélt dansdeild Klifsins til að mynda glæsilega danssýningu í Gamla bíó þar sem nemendur […]

Flokkur: Fréttir,
myndlist-strakur
29
mar
Páskafrí í Klifinu 30. mars – 6. apríl

Klifið er komið í páskafrí. Því eru engin námskeið í vikunni. Námskeiðin hefjast á nýjan leik þriðjudaginn eftir páska.   Gleðilega páska ! 

Flokkur: Fréttir,
dansaefing-vor-15
22
mar
Miðasala hafin á vorsýningu dansdeildar

Nú styttist í hina árlegu vorsýningu dansdeildar Klifsins, en hún fer fram föstudaginn 27. mars nk. kl. 18:00.  Sýningin fer að þessu sinni fram í Gamla bíó, Ingólfsstræti 2 í Reykjavík. Við vorum svo heppin að komast að í samkomuhúsinu Gamla bíó í þetta fallega hús sem er nýbúið að gera upp. Þar er mjög gott […]

Flokkur: Fréttir,
Tags: Ballett, danssýning, gamla bíó, klifið, pétur og úlfurinn, vorsýning,
Screen Shot 2015-03-13 at 21.29.06
13
mar
Ballettæfingar á laugardag færast til sunnudags

Vegna ofsaveðurs sem spáð er laugardaginn 14. mars verða allar ballettæfingar í Klifinu færðar frá laugardegi yfir á sunnudaginn 15. mars en þá á veðrið að verða mun skaplegra.  Æfingarnar verða á sama tíma og venjulega og á sama stað.    

Flokkur: Fréttir,
Screen Shot 2015-03-11 at 13.53.09
11
mar
Sýning Hönnu Dísar og Rúnu á HönnunarMarsi

Næstkomandi laugardag, þann 14. mars, mun námskeiðið Myndlist og hönnun, ævintýralegar fígúrur falla niður þar sem báðir kennarar námskeiðsins eru að taka þátt í HönnunarMarsi. Þær Rúna og Hanna Dís bjóða börn og fullorðna, hjartanlega velkomin á sýningarnar þeirra.  Hér má sjá dagskrá Hönnunarmars 2015. Hanna Dís verður með sýningu í Hannesarholti, Grundarstíg 10.  Á sýningunni […]

Flokkur: Fréttir,
Screen Shot 2015-03-10 at 12.40.31
10
mar
Slæmt veður – námskeiðum frestað í dag

Þriðjudaginn 10. mars falla öll námskeið niður í Klifinu vegna veðurs.  Veðurstofa Íslands spáir mjög slæmu veðri seinnipartinn í dag og í samtali við veðurstofuna fyrr í dag var okkur ráðlagt að fella niður öll námskeið síðdegis.  Mikill snjór er á götum og líklegt að það verði ófært víða.

Flokkur: Fréttir,
  • Previous
  • 1
  • …
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • …
  • 18
  • Next

Klifið

Klifið býður upp á fjölbreytt skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna.

Virkjaðu sköpunarkraftinn þinn í Klifinu!

Hafðu samband

  • Garðatorg 7
  • klifid@klifid.is

Fylgdu okkur

Leita