Námskeiðið hentar þeim sem vilja prófa mismunandi efni þegar kemur að módelteikningum. Á þessu námskeið verður annarsvegar notast við vatnsliti og hinsvegar við kol. Módelinu verður stillt upp í mimunandi stellingar í mislangan tíma og kenndar verða aðferðir til að mæla hlutföll þess. Einnig verður unnið með útlínur, form, ljós og skugga.
Mælt er með því að nemandinn hafi grunn í teikningu eða hafi áður farið á módelnámskeið til að sækja þetta námskeið.