Badminton í góðra vina hópi er sannkölluð næring fyrir líkama og sál. Klifið býður hópum að taka á leigu badmintonvöll í íþróttamiðstöð Sjálandsskóla. Tilvalið er fyrir vinahópa, vinnufélaga, saumaklúbba að eiga frátekinn völl einu sinni í viku. Pláss er fyrir fjóra iðkendur á einum velli í einu. Pláss er fyrir þrjá hópa í senn þar sem þrír vellir eru í salnum.
Tímabil vor 2024
Mánudagshópar: 17 skipti – frá 15. jan – 27. maí
- Mánudagur kl 20:00-21:00 – Uppbókað/Biðlisti
- Mánudagur kl 21:00-22:00 – Uppbókað/Biðlisti
Fimmtudagshópar: 17 skipti frá 11. jan – 23. maí
- Fimmtudagur kl 20:00-21:00 – Uppbókað/Biðlisti
- Fimmtudagur kl 21:00-22:00 – Uppbókað/Biðlisti
Athugið verðið miðast við hvern völl og deilist því niður á þátttakendur á hverjum velli fyrir sig. Dæmi ef fjórir eru saman með völl þá greiðir hver þátttakandi 19.975 kr fyrir 17 vikur. (1.175 kr fyrir skiptið)
Einn iðkandi sagðist ,,vera á landsliðsæfingu“ þegar hann var spurður út í badmintontímana og annar sagði badmintonið vera heilagan tíma í dagskrá vikunnar. Margir iðkendur koma ár eftir ár og komast færri að en vilja.
Senda þarf tölvupóst á klifid@klifid.is og tiltaka nafn og netfang meðlima hópsins við skráningu. Greiðsla fer svo fram í gegnum Sportabler.